Carex brunnescens

Ættkvísl
Carex
Nafn
brunnescens
Íslenskt nafn
Línstör
Ætt
Cyperaceae (Stararætt)
Samheiti
Carex curta Goodenough var. brunnescens Persoon, Syn. Pl. 2: 539. 1807; C. canescens var. brunnescens (Persoon) W. D. J. Koch; C. canescens subsp. brunnescens (Persoon) Ascherson & Graebner
Lífsform
Fjölær grasleitur einkímblöðungur
Kjörlendi
Vex aðallega í mýrum. Fundin á örfáum stöðum á V, NV, N, NA, A og MhS.
Blómgunartími
Júní-júlí
Hæð
0.15 - 0.4 m
Vaxtarlag
Myndar þúfur eða toppa með uppréttum, mjóum, en nokkuð stinnum stráum, snörpum ofantil, en blöðóttum neðantil. Stráin uppétt eða aðeins lútandi, mjóslegin, 25-40 sm á hæð. Stuttir jarðstönglar.
Lýsing
Blöðin græn-gulgræn, flöt, kjöluð, snarprend, langydd og oddmjó, 10–25 sm × 0.5–2 mm, styttri en stráin. Blómskipan upprétt eða aðeins lútandi, 1.5–7 sm × 3–6 mm. Samaxið gulgrænt með brúnum blæ. Smáöxin lítil, stutt, oft hnattlaga og göddótt. Stutt, broddkennt stoðblað við neðsta axið. Axhlífarnar egglaga, móleitar. Hulstrið móleitt, stutttrýnt, tæplega 2,5 mm á lengd. Blómgast í júní. 2n = 56.LÍK/LÍKAR: Líkist nokkuð blátoppastör en er með fíngerðari strá og móleitari, styttri og hnöttóttari öx auk þess sem hún vex í hálfþurru graslendi.
Heimildir
1,2,3,9, HKr, http://www.efloras.org/florataxon.aspx?flora_id=1&taxon_id=242357091
Útbreiðsla
Sjaldgæf, algengust um norðaustanvert landið. Hvarvetna þar sem hún vex er mjög lítið af henni, oftast örfáir smátoppar.Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: N Ameríka, Grænland, Kanada og Labrador, Evrópa, Asía