Carex capitata

Ættkvísl
Carex
Nafn
capitata
Íslenskt nafn
Hnappstör
Ætt
Cyperaceae (Stararætt)
Samheiti
Carex arctogena Harry Smith; C. capitata var. arctogena (Harry Smith) Hultén; C. capitata subsp. arctogena (Harry Smith) Böcher
Lífsform
Fjölær grasleitur einkímblöðungur
Kjörlendi
Vex í þurru graslendi, á harðbölum og í mólendi.
Blómgunartími
Júní-júlí
Hæð
0.15 - 0.30 m
Vaxtarlag
Þýfð, meðalstór stör sem vex í þéttum toppum með stinnum, uppréttum stráum og þráðmjóum blöðum, 15-30 sm á hæð.
Lýsing
Blöðin mjóslegin (1 mm) og snarprend, virðast sívöl í ummáli, en eru grópuð eða samanbrotin. Axið endastætt á stöngulenda, stutt og gilt, hnapplaga eða því sem næst krninglótt, 6-8 mm á lengd og 6-7 mm á breidd. Karlblómin mynda smátrjónu í enda axins, en kvenblómin eru neðar, í gildari hlutanum. Axhlífar brúnar í miðju en himnukenndar til jaðranna. Hulstrin útstæð, flatvaxin, taugalaus, egglaga, ljósgræn eða gulmóleit, allbreið með langri trjónu, 2,3-3,0 mm á lengd, lengri og breiðari en axhlífarnar. Tvö fræni. Blómgast í júní. 2n = 50.LÍK/LÍKAR: Engar. Auðþekkt á litlum, hnöttóttum öxum.
Heimildir
1,2,3,9, H.Kr., http://www.efloras.org/florataxon.aspx?flora_id=1&taxon_id=242357104
Útbreiðsla
Algeng á landræna svæðinu norðan jökla, annars víða um land nema ófundin á norðanverðum Vestfjörðum.Önnur náttúrleg heimkynni t.d.: Grænland, N Ameríka, S Ameríka, Evrópa og Asía.