Carex chordorrhiza

Ættkvísl
Carex
Nafn
chordorrhiza
Íslenskt nafn
Vetrarkvíðastör
Ætt
Cyperaceae (Stararætt)
Samheiti
Vignea chordorrhiza (L.f.) Rchb.
Lífsform
Fjölær grasleitur einkímblöðungur
Kjörlendi
Vex í votum mýrum og flóum.
Blómgunartími
Júní
Hæð
0.15 - 0.30 m
Vaxtarlag
Jarðstönglar langskriðulir með uppsveigðum eða skástæðum blaðsprotum (vetrarkvíða). Jarðstöngar geta orðið um og yfir 50-60 sm langir að hausti og jafnvel lengri. Stráin gulgræn, hol, allgild, nær sívöl, upprétt, skástæð eða uppsveigð, 15-30 sm á hæð.
Lýsing
Blöðin ljósgræn, ydd, flöt eða kjöluð, um 2 mm á breidd. Samöxin blómfá, öxin nokkur saman í þyrpingu efst á stráinu. Karlblóm efst í hverju axi en kvenblóm neðar. Axhlífar brúnar. langar, odddregnar, brúnar, himnurendar. Hulstrin gárótt, um 3,5 mm á lengd, græn eða ljósbrún, egglaga með stuttri, sléttri trjónu. Tvö fræni. Hotin silfurbrún, mjúk. Blómgast í júní. 2n = 60.Alg. LÍK/LÍKAR: Engar. Auðþekkt á uppsveigðum, skástæðum stráum og löngum blaðsprotum sem liggja lausir ofan á jörðunni.
Heimildir
1,2,3,9, HKr, http://www.efloras.org/florataxon.aspx?flora_id=1&taxon_id=242357115
Útbreiðsla
Algeng í votlendi um land allt, nema fremur fátíð á Suðausturlandi frá Markarfljóti austur í Öræfi, og strjál á Vestfjörðum. Sjaldséð eða ófundin á miðhálendinu í regnskugga jöklanna.Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Grænland, N Ameríka, Labrador, Kanada, Alaska, Evrópa, og Asía.