Carex pilulifera

Ættkvísl
Carex
Nafn
pilulifera
Íslenskt nafn
Dúnhulstrastör
Ætt
Cyperaceae (Stararætt)
Lífsform
Fjölær grasleitur einkímblöðungur
Kjörlendi
Vex í graslendi, bollum og gilbrekkum. Víða í sumum landshlutum en ekki sunnanlands eða á miðhálendinu.
Blómgunartími
Júlí
Hæð
0.10 - 0.35 m
Vaxtarlag
Lausþýfð, stráin yfirleitt grönn (1 mm) og læpuleg, leggjast með aldrinum, dálítið snörp og þrístrend ofantil, 15-35 sm á hæð.
Lýsing
Blöðin ljósgræn, mjó og stinn, með gráum slíðrum, flöt eða kjöluð, með niðurorpnum röndum, 1,5-3,5 mm á breidd.Eitt karlax og tvö eða þrjú stutt og nærri hnöttótt kvenöx, sem sitja þétt saman í kolli á stráendum. Stoðblað neðsta axins áberandi, stutt og grænt, 5-15 mm á lengd. Axhlífarnar ljósmóleitar og broddyddar með grænleitri, upphleyptri miðtaug sem gengur fram úr blaðinu og myndar brodd. Hulstrið dúnhært, bústið, með stuttri, tvíyddri trjónu, um 2,5 mm á lengd. Frænin þrjú. Blómgast í júlí.LÍK/LÍKAR: Engar.
Heimildir
1,2,3,9, HKr, http://www.wsl.ch/staff/ueli.graf/cx/Artbeschreibungen/cx_pifera-de.ehtml; FlIsl, W. Keble Martin 1978: The Concise British Flora in Colour Flora of Europe V.
Reynsla
Carex caryophyllea is a very rare sedge, resembling Pill Sedge in having hairy utricles. The culms are much stiffer, spikes longer, and scales green around the midrib. Found only in the southern slope of Reykjanes Peninsula.
Útbreiðsla
Víða í nokkrum útsveitum: Reykjanesskaga, Snæfellsnesi, hluta Vestfjarða, Miðnorðurlandi og nyrðri hluta Austfjarða, vantar eða er mjög sjaldséð annars staðar.Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Evrópa.