Chenopodium album

Ættkvísl
Chenopodium
Nafn
album
Íslenskt nafn
Hélunjóli
Ætt
Chenopodiaceae (Hélunjólaætt)
Samheiti
Chenopodium leiospermum DC.Chenopodium reticulatum AellenChenopodium virgatum Thunb.Chenopodium album subsp. concatenatum Thuill.Chenopodium album subsp. densifoliatum A. Ludw. & AellenChenopodium album subsp. diversifolium AellenChenopodium album subsp. fallax AellenChenopodium album subsp. iranicum AellenChenopodium album subsp. ovatum AellenChenopodium album subsp. reticulatum (Aellen) Beauge ex Greuter & BurdetChenopodium album subsp. virgatum (Thunb.) BlomChenopodium album var. reticulatum (Aellen) UotilaChenopodium leiospermum var. album (L.) C. N.Chenopodium leiospermum var. lanceolatum
Lífsform
Einær
Kjörlendi
Skýtur upp kollinum hér og hvar í byggð, helst í röskuðu landi.
Blómgunartími
Júlí-sept.
Vaxtarlag
Stönglar uppréttir, greindir og blöðóttir, 20-60 sm á hæð.
Lýsing
Einær jurt. Blöðin stilkuð, óreglulega tennt, egglaga-lensulaga, dálítið hrímug, einkum efstu blöðin. Blómin grænleit, smá og óásjáleg, tvíkynja. Blómhnoðin í greindu axi úr blaðöxlum. Engin krónublöð. Blómhlífarblöðin græn. Blómhlífarblöðin 3-5, uppréttt, laus, langæ og lykja um aldinið. Blómgast í júlí.Lík/líkar: Engar.
Heimildir
9, HKr
Útbreiðsla
Slæðingur, skyldur hrímblöðku og hélublöðku sem vex á stöku stað hérlendis, helst í grennd við bæi en ílendist ekki til lengdar. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Víðast hvar flokkað sem illgresi, sem er útbreitt meira og minna um allan heim.