Cystopteris fragilis

Ættkvísl
Cystopteris
Nafn
fragilis
Íslenskt nafn
Tófugras
Ætt
Dryopteridaceae (Fjöllaufungsætt)
Samheiti
Too long list of synonyms - According to: BfN - FloraWeb DB, 2003.
Lífsform
Fjölær burkni (gróplanta)
Kjörlendi
Vex í urðum, klettaskorum, hraunsprungum og hellum, oftast í skugga.
Hæð
0.10 - 0.25 m
Vaxtarlag
Fremur smávaxin jurt, oftast hárlaus eða lítið eitt flosug, með skriðulum láréttum jarðstöngli með a.m.k. tvífjöðruðum blöðkum, 10-25 sm á hæð en stundum meira.
Lýsing
Blöðin tví- eða þríhálffjöðruð, oddmjó, oftast breiðlensulaga og stökk. Töluvert bil er á milli smáblaðanna og eru þau breiðust næst miðstrengnum en mjókka til enda. Smáblöð annarrar gráðu fjaðursepótt eða flipótt. Blaðstilkurinn styttri en blaðkan, dálítið ljóshreistraður neðantil, fremur fíngerður og brothættur, yfirleitt dökkbrúnn en stundum grænn. Gróblettir í tveim röðum á neðra borði, fremur smáir og fíngerðir; Hulan hylur fyrst gróblettinn meðan þeir eru ungir, en skreppur síðan saman og fellur burt. Gróblettirnir vaxa saman með aldrinum. 2n = 168, 252.LÍK/LÍKAR: Liðfætla & refagras. Liðfætla er með loðnar og flösugar blöðkur og er því auðþekkt frá tófugrasi sem er hárlaust eða nær hárlaust. Á refagrasi eru gróin eru með netkenndu yfirborðsmynstri, en ekki göddóttu eins og á tófugrasi.Refagras - Cystopteris dickieana er náskylt tófugrasi en oftast talin sérstök tegund. Gróin eru með netkenndu yfirborðsmynstri, en ekki göddóttu eins og á tófugrasinu. Að öðru leyti er það tæpast greinanlegt frá því. Gróin eru svo smá að smásjárskoðun þarf til að greina þau. Hefur refagras fundist á örfáum stöðum norðanlands.
Heimildir
1,2,3,9, HKr, http://www.efloras.org/florataxon.aspx?flora_id=1&taxon_id=200003869; http://www.pfaf.org/database/plants.php?Cystopteris+fragilis
Útbreiðsla
Algengt um land allt. Tófugrasið er langalgengasti burkninn á Íslandi og sá eini sem er útbreiddur um allt landið. Önnur náttúruleg heimkynni: Vex um allan heim en aðeins til fjalla í hitabeltinu.