Diphasiastrum alpinum

Ættkvísl
Diphasiastrum
Nafn
alpinum
Íslenskt nafn
Litunarjafni
Ætt
Lycopodiaceae
Samheiti
Diphasium alpinum (L.) Rothm.Lycopodium alpinum L.
Lífsform
Fjölær gróplanta
Kjörlendi
Vex í grýttum jarðvegi innan um lyng og hrís eða í bollum og snjódældum.
Blómgunartími
Gróbær í ág.-sept.
Hæð
0.08-0.15 m (jarðl. greinar allt að 0.5 m)
Lýsing
Sígræn jurt, með langa, jarðlæga, ljósgræna, blöðótta stöngla með uppréttum eða uppsveigðum, marggreindum greinum, 8-50 sm á lengd. Uppréttar greinar verða gjarnan 8-15 sm en jarðlægir stönglar eru oft allt að 50 sm eða lengri.Blöðin dökkgræn og bládöggvótt, kúpt utan, smá, lensulaga og heilrend, sljóydd, aðlæg með aðsveigðum jöðrum svo sprotarnir virðast grennri en á hinum jöfnunum, 3-4 mm á lengd og oftast í fjórum jöfnum röðum. Gróhirslur í öxlum sérstakra gróblaða sem standa í gróöxum efst á uppréttum greinum. Gróblöðin flöt, oddmjó og breiðfætt, með óreglulega tenntum jaðri, hvert með eina gróhirslu í blaðöxlinni. Sjaldan gróbær, og þá í ágúst. LÍK/LÍKAR: Engar.
Heimildir
1,2,3,9, HKr
Reynsla
“Var fyrrum notaður til litunar, aðallega með öðrum litagjöfum. Hefur að öðru leyti líka verkun og lyngjafni”. (Ág.H.)
Útbreiðsla
Algengur eða allvíða á norðanverðu landinu en sjaldgæfur sunnanlands. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Arktísk (pólhverf), Norðurhvel; Evrópa, Asía, N Ameríka