Dryopteris expansa

Ættkvísl
Dryopteris
Nafn
expansa
Íslenskt nafn
Dílaburkni
Ætt
Dryopteridaceae (Skjaldburknaætt)
Samheiti
Dryopteris assimilis S. Walker; Dryopteris siranensis Nakai; Lastrea expansa (C. Presl) C. Presl; Dryopteris carthusiana subsp. assimilis (S. Walker) O. Bolòs et al.; Dryopteris spinulosa subsp. assimilis (S. Walker) Schidlay;
Lífsform
Fjölær burkni (gróplanta)
Kjörlendi
Vex í urðum, gjám, hraunsprungum, stórgrýtisurðum, grónum bollum og í kjarri. Fremur sjaldgæf, þó nokkuð algengur vestanlands en sjaldséðari í öðrum landshlutum.
Hæð
0.30 - 0.80 m
Vaxtarlag
Þýfð, mörg blöð saman í hverri þúfu, upp af uppréttum eða uppsveigðum jarðstöngli. Blaðstilkurinn er þriðjungur eða meira af lengd blaðsins, oft þétt brúnflosugur neðan til, 30-80 sm á hæð.
Lýsing
Blöðin stór og ljósgræn, þrí- eða fjórhálffjöðruð og egglaga. Öll blaðkan gróbær. Hliðarsmáblöðin skakktígullaga eða nær þríhyrnd, mjókka út í oddinn en breiðust neðst (4-6 sm). Þau smáblöð annarrar gráðu, sem vísa niður eru áberandi stærri en þau sem vísa upp. Smáblöð þriðju gráðu djúpsepótt eða flipótt. Flipinn á innra bleðli neðsta aðalsmáblaðsins meira en helmingi styttri en smáblaðið sjálft. Gróblettir nær kringlóttir eða grunnt nýrlaga. Gróhulan nokkuð varanleg. Gróin dökkbrún og þéttsett óreglulegum, sljóum göddum. 2n = 82.LÍK/LÍKAR: Stóriburkni og fjöllaufungur. Dílaburkni þekkist auðveldlega frá þeim báðum á því að blaðkan er meira skipt (minnst þrífjöðruð) og með hlutfallslega lengri blaðstilk en auk þess má nefna að bleðlar hliðarsmáblaðanna eru misstórir á hvorri hlið.
Heimildir
1,2,3,9, HKr, http://www.efloras.org/florataxon.aspx?flora_id=1&taxon_id=200004420; http://www.pfaf.org/database/plants.php?Dryopteris+expansa
Útbreiðsla
Allalgengur á Vestfjörðum, á nokkrum stöðum á Reykjanesskaga og Snæfellsnesi, sjaldgæfur á Norðurlandi. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: N Ameríka, Evrópa