Eleocharis uniglumis

Ættkvísl
Eleocharis
Nafn
uniglumis
Íslenskt nafn
Vætuskúfur
Ætt
Cyperaceae (Stararætt)
Samheiti
Eleocharis carinata SakaloEleocharis euuniglumis Zinserl.Eleocharis fennica Palla ex KneuckerEleocharis klingei (Meinsh.) B. Fedtsch.Eleocharis korshinskayana Zinserl.Eleocharis macropoda Zoz, non Beauv.Eleocharis sareptana Zinserl.Eleocharis scythica Zinserl.Eleocharis septentrionalis Zinserl.Eleocharis transcaucasica Zinserl.Eleocharis zinserlingii ZozScirpus uniglumis LinkEleocharis palustris subsp. uniglumis (Link) Hartman
Lífsform
Fjölær grasleitur einkímblöðungur
Kjörlendi
Vex í mýrum, einkum nærri sjó.
Blómgunartími
Júní-júlí
Hæð
0.10 - 0.40 m
Vaxtarlag
Myndar þéttar breiður, áberandi jarðstönglar.
Lýsing
Vætuskúfur líkist mjög vatnsnál en vex frekar í mýrum, einkum nærri sjó. Hann er heldur smærri með styttra ax. Má greina frá vatnsnál á því að neðri axhlífin feðmir alveg utan um axfótinn, en á vatnsnál aðeins að hálfu á móti efri axhlífinni.
Heimildir
9, HKr, http://www.efloras.org/florataxon.aspx?flora_id=1&taxon_id=200026754
Útbreiðsla
Vætuskúfur er algengur á láglendi á sunnanverðu landinu en dreifðari í öðrum landshlutum. Eingöngu við jarðhita á hálendinu.Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: N Ameríka, Evrópa, Asía.