Elymus alopex

Ættkvísl
Elymus
Nafn
alopex
Íslenskt nafn
Kjarrhveiti
Ætt
Poaceae (Grasaætt)
Samheiti
Elymus caninus L.; Triticum caninum Linnaeus, Sp. Pl. 1: 86. 1753; Agr-opyron caninum (Linnaeus) P. Beauvois; Braconotia canina (Linnaeus) Fourreau; B. elymoides Godron, nom. illeg. superfl.; Elytrigia canina (Linnaeus) Drobow; Goulardia canina (Linnaeus) Husnot; Roegneria canina (Linnaeus) Nevski; Zeia canina (Linnaeus) Lunell.
Lífsform
Fjölær grastegund
Kjörlendi
Vex í graslendi og oft innan um hrís og runna. Algengast í innsveitum Suður-Þingeyjarsýslu
Blómgunartími
Júlí-ág.
Hæð
0.40 - 0.9 m
Vaxtarlag
Lausþýfð grastegund, stráin upprétt, 40-90 sm á hæð.
Lýsing
Blöðin ljósgræn, þunn, mjúk og hærð beggja vegna en þó sérstaklega á efra borði, 12?20 × 0.5?1.1 sm. Blaðslíður hárlaus, engin slíðurhimna. Axið þétt, ljósgrænt - fjólublámengað, með 10-20 smáöxum, oft lotið eða aðeins lotið, 6-12 sm á lengd. Smáöxin oftast þríblóma, það efsta ófrjótt. Axagnir 10-20 mm langar, lensulaga oddmjóar með langri týtu, gis- og stutthærðar, með þrem til sex upphleyptum taugum. Neðri blómögn með týtu sem er töluvert lengri en ögnin. Blómgast í júlí. 2n = 28.LÍK/LÍKAR: Bláhveiti. Kjarrhveitið þekkist á axögnunum og á mun lengri týtum.
Heimildir
9, HKr, http://www.efloras.org/florataxon.aspx?flora_id=2&taxon_id=242320267
Útbreiðsla
Sjaldgæft. Vex í innsveitum á Norður- og Austurlandi frá Skagafirði austur á Fljótsdalshérað. Utan þessa svæðis eru aðeins stakir fundir.Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: SV Asía, Evrópa.