Equisetum variegatum

Ættkvísl
Equisetum
Nafn
variegatum
Íslenskt nafn
Beitieski
Ætt
Equisetaceae (Elftingarætt)
Samheiti
Equisetum variegatum Schleich.Equisetum wilsonii NewmanHippochaete variegata (Schleich.) BruhinEquisetum hyemale subsp. variegatum (Schleich. ex Weber & D. Mohr) A. BraunEquisetum hyemale var. variegatum (Schleich. ex Weber & D. Mohr) Newman
Lífsform
Fjölær gróplanta
Kjörlendi
Vex í margs konar gróðurlendi, móum, deiglendi, skriðum, söndum og jafnvel í mýrum.
Hæð
0.2-0.3 m
Vaxtarlag
Jurt með skriðulum, greindum, jarðstönglum. Upp af þeim vaxa grannir (1-2mm í þvermál), liðskiptir, fimm- til átt¬strendir, harðir, sígrænir, grænir eða gráleitir stönglar með mjóu miðholi, greindir neðan til, 20-30 sm á hæð.
Lýsing
Tennt, uppvíð slíður við hvern lið, dökk til enda. Slíðurtennur lensulaga með örmóum broddi sem fellur af með aldrinum, 5-8 alls, svartar í miðju með breiðum, hvítleitum himnufaldi á jöðrum og svart belti er áberandi undir tönnunum. Gróaxið endastætt, svart eða móleitt, oddmjótt í endann. LÍK/LÍKAR: Eski. Beitieskið er miklu grennra en eski og með þrengra miðhol í stönglunum, uppvíðum stöngulslíðrum og færri og varanlegri slíðurtönnum. Mýrelfting getur einnig líkst beitieski en hún hefur skarpari slíðurtennur, oftast fleiri greinar og engan odd upp úr gróaxinu eins og beitieskið. “Smáeski og móaeski eru önnur nöfn á tegundinni.” (Ág.H.)
Heimildir
1,2,3,9, HKr
Útbreiðsla
Algengt um land allt.Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Artíska og temp. beltið; N Ameríka, Evrópa, N & A Asía