Eriophorum angustifolium

Ættkvísl
Eriophorum
Nafn
angustifolium
Íslenskt nafn
Klófífa (marghneppa)
Ætt
Cyperaceae (Stararætt)
Samheiti
Eriophorum polystachyum L.; Eriophorum angustifolium Honck. ssp. subarcticum (V. N. Vassil.) Hultén (ssp. angustifolium)
Lífsform
Fjölær einkímblöðungur
Kjörlendi
Vex á votlendi, flóum, mýrum og á blautum bökkum tjarna og vatna.
Blómgunartími
Júní-júlí
Hæð
0.20 - 0.40 m
Vaxtarlag
Upp af löngum skriðulum jarðstönglum vaxa stráin, eilítið flatvaxin, með löngum blöðum frá grunni. Stönglar sívalir, uppréttir eða aðeins sveigðir, 20-40 sm á hæð.
Lýsing
Blöðin með kili eða rennulaga, oft snarprend, flöt eða kjöluð neðan til, þrístrend framantil, oft mógljáandi og aftursveigð til enda, 4-8 mm á breidd.Öxin nær ætíð fleiri en eitt, egglaga, á mislöngum leggjum, sem bogna með aldrinum. Blómin í fjórum til sex leggjuðum, drúpandi öxum til hliðar við alllangt, grænt stoðblað. Axhlífarnar, himnukenndar, glærar neðst, en mógráar eða grábrúnar ofan til. Blómin umkringd hvítum hárum í stað blómhlífar. Hárin lengjast við aldinþroskunina og verða að 2-3 sm löngum svifhárum. Fífuhárin nokkuð mislöng, hvít. Fræflar þrír; frjóhirslurnar gular og fremur langar (4-5 mm). Ein fræva í hverju blómi með löngu þrískiptu fræni. Blómgast í júní. LÍK/LÍKAR: Hrafnafífa. Klófífan er auðgreind á mörgum öxum (fífum) og breiðari blöðum, þrístrendum í oddinn.
Heimildir
1,2,3,9, HKr, http://www.efloras.org/florataxon.aspx?flora_id=1&taxon_id=242357811; http://www.pfaf.org/database/plants.php?Eriophorum+angustifolium
Reynsla
Klófífan er áberandi planta, bæði blöðin, brokið og aldinið, fífan. Nöfnin eru því mörg. Af blöðum hefur plantan hlotið nöfnin brok, fjallabrok, hringabrok (tilkomið af því að þau hringbeygjast) og rauðbroti og rauðbreyskingur vegna litar. Fífa er sennilega það nafn sem flestir þekkja, en einnig eru kunn nöfnin mýrafífa, krossfífa, klófífa og marghneppa (dregið af því, að fífuhnoðrar eru venjulega 3-5. Fræullin, lóin, hefur lítillega verið notuð til þess að fylla kodda og sessur, og einnig var hún spunnin saman við venjulega ull en ekki hefur það gefist vel. Hún hefurverið nefnd Arctic Wool. Fífukveikir voru snúnir úr hnoðrunum fyrrum og er það auðvelt, einkum í rekju. (Ág. H.)
Útbreiðsla
Algeng um land allt, bæði á láglendi og til fjalla.Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: N Ameríka, Evrópa, Asía, Grænland.