Fragaria vesca

Ættkvísl
Fragaria
Nafn
vesca
Íslenskt nafn
Jarðarber
Ætt
Rosaceae (Rósaætt)
Samheiti
Fragaria chinensis Losinsk.Fragaria concolor Kitag.Fragaria nipponica auct.
Lífsform
Fjölær jurt
Kjörlendi
Vex í þurrum, sólríkum grasbrekkum og í skóglendi víða um land.
Blómalitur
Hvítur
Blómgunartími
Júlí
Hæð
0.05-0.15 m
Vaxtarlag
Jurtin er 5-15 sm á hæð en jarðlægar renglur eru gjarnan mun lengri. Jarðstönglar allgildir með uppréttum, þrífingruðum blöðum á löngum, þétthærðum stilkum. Blöð í stofnhvirfingum. Frá stofnhvirfingum blaða vaxa langar renglur, sem skjóta rótum og nýjar hvirfingar myndast.
Lýsing
Blöðin þrífingruð, gishærð á efra borði en silfurhærð á neðra borði. Smáblöðin gróftennt, 1,5-3 sm á lengd og 1-2 sm á breidd, tígullaga eða öfugegglaga. Blómin hvít, fimmdeild, sitja á aðhærðum leggjum, krónublöðin öfugegglaga, 12-15 mm í þvermál, Bikarblöðin töluvert styttri, oddmjó. Utanbikarflipar heldur mjórri en bikarblöðin. Fræflar 10 og frævur allmargar og verða þær að litlum, dökkum hnetum utan á þroskuðu jarðarberinu. Jarðarberið er því ekki eiginlegt ber, heldur er það myndað af blómbotninum, sem þrútnar út. Blómgast í júlí.Venjulega eru íslensku jarðarberin fremur smá og þroskast seint. Þau eru sérlega bragðgóð og geta skilað þokkalega góðri uppskeru á veðursælum stöðum í frjóum brekkum móti suðri.LÍK/LÍKAR: Blómin líkjast mýrasóley, en jarðarberin þekkjast auðveldlega á hinum þrífingruðu blöðum. Óblómguð getur jarðarberjaplantan líkst hrútaberjalyngi en auðþekkt á stilklausu endasmáblaði og þéttari hæringu, einkum á neðra borði.
Heimildir
1,2,3,9, HKr
Reynsla
“Berin þóttu góð við slæmum maga, matarólyst, þvagstemmu, brjóstveiki, liðaverkjum og steinum í nýrum og blöðru. Tennur verða hvítar og fallegar, sé jarðarberjasafi látinn verka á þær í 5-10 mín. og þær síðan þvegnar úr volgu vatni, sem lítið eitt af matarsóda er leyst í.” (Ág. H.)
Útbreiðsla
Hitakær jurt sem er algeng um sunnan- og vestanvert landið, einnig víða í innsveitum frá Skagafirði austur í Suður-Þingeyjarsýslu og á Fljótsdalshéraði.Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Temp. Asía, Evrópa, N Ameríka