Galium uliginosum

Ættkvísl
Galium
Nafn
uliginosum
Íslenskt nafn
Laugamaðra
Ætt
Rubiaceae (Möðruætt)
Lífsform
Fjölær jurt
Kjörlendi
Vex í röku graslendi, í mýrum, á bökkum, grösugum rökum móum, grónum hvömmum og í kjarri.
Blómalitur
Hvítur
Blómgunartími
Júlí
Vaxtarlag
Stönglar renglulegir, jarðlægir eða meira eða minna uppréttir, greindir, skrarpstrendir og með niðurvísandi, hvítum broddum sem gera þá snarpa viðkomu, 10-30 sm á hæð.
Lýsing
Blöðin snarprend á jöðrum, yfirleitt fjögur til sex í hverjum kransi, lensulaga eða breiðlensulaga, 6-14 mm á lengd, frambreið og broddydd. Blómin fjórdeild, hvít, standa nokkur saman í samsettum blómskipunum sem koma úr blaðöxlum efri blaðanna. Krónan samblaða, djúpklofin, 3-4 mm í þvermál, með útrétta, krossstæða flipa. Bikarinn óhærður. Fræflar fjórir og ein fræva með klofnum stíl. Aldin einnig snörp á uppréttum eða útréttum leggjum. Blómgast í júlí.LÍK/LÍKAR: Hvítmaðra. Laugamaðran auðgreind á hinum snarpa stöngli, ekki fleiri en 6 blöð í kransi (oft 7 eða 8 á hvítmöðru).
Heimildir
1,2,3,9, HKr
Útbreiðsla
Fremur sjaldgæf. Finnst á allmörgum stöðum dreift um landið nema á Suðausturlandi, sums staðar nokkuð algeng eins og t.d. í nágrenni Akureyrar. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: N Ameríka, Evrópa og ílend á Nýja Sjálandi og víðar.