Gentianopsis detonsa

Ættkvísl
Gentianopsis
Nafn
detonsa
Íslenskt nafn
Engjavöndur
Ætt
Gentianaceae (Maríuvandarætt)
Samheiti
Gentiana detonsa Rottb.Gentianella detonsa (Rottb.) G.Don
Lífsform
Tvíær jurt
Kjörlendi
Vex á sendnum, deigum flæðiengjum, sjávar- og árbökkum á láglendi.
Blómalitur
Fjólublár
Blómgunartími
Júlí-ágúst
Hæð
0.05-0.20 m
Vaxtarlag
Jurtin er öll hárlaus, 5-20 sm á hæð. Stönglar lítt greindir, gáróttir, uppréttir og oft myndast allmargir uppréttir hliðarstönglar, álíka gildir og háir og aðalstöngullinn.
Lýsing
Blöðin heilrend, 1-2 sm á lengd, Stöngulblöðin eru fá og mjó, aflöng eða mjólensulaga, ydd. Grunnblöðin spaðalaga eða mjóöfugegglaga, niðurmjó og dragast niður í stuttan stilk.Blómin fjólublá oftast fjórdeild, en stundum fimmdeild. Krónublöðin, allstór, pípulaga, 2,5-5 sm á lengd, 1-1 ,5 sm í þvermál efst, ginleppalaus. Bikarinn oftast með fjórum, löngum og oddmjóum flipum, 2- 3 sm á lengd. Fræflar fjórir og ein tvíblaða fræva sem myndar sívalt, aflangt hýði. Blómgast í júlí-ágúst.LÍK/LÍKAR: Maríuvöndur. Engjavöndurinn er með blárri blóm, vantar ginleppa í blómginið og einnig auðþekktur á bikarn¬um.
Heimildir
1,2,3,9, HKr
Útbreiðsla
Allvíða. Algengur á norðan- og austanverðu landinu, sjaldgæfari annars staðar nema á Rauðasandi. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Kanada, Kína, Grænland, Mexíkó, Noregur, Rússland og N Ameríka