Glaux maritima

Ættkvísl
Glaux
Nafn
maritima
Íslenskt nafn
Sandlæðingur
Ætt
Primulaceae (Maríulykilsætt)
Samheiti
Glaucoides maritima (L.) Lunell
Lífsform
Fjölær jurt
Kjörlendi
Vex á sjávarfitjum og í sendnum jarðvegi við sjó.
Blómalitur
Hvítur-bleikleitur með bleikrauðum æðum
Blómgunartími
Júlí-ágúst
Hæð
0.03-0.10 m
Vaxtarlag
Lítil jurt 3-10 sm á hæð með jarðlæga, skriðula stöngla með uppréttum greinum. Stönglar hárlausir og þéttblöðóttir.
Lýsing
Laufblöðin dökkgræn-blágræn, hárlaus, þykk, gagnstæð, öfugegglaga eða oddbaugótt, 6-12 mm á lengd og 2-4 mm á breidd. Blómin fimmdeild, stök í blaðöxlunum. Krónublöðin einföld, hvít eða bleikleit með bleikrauðum æðum eða strikum. Bikarblöðin samblaða en djúpt klofin með ávölum flipum. Fræflar 5, með bleikrauðum knappleggjum. Frævan ein, flöskulaga með einum stíl. Blómgast í júlí-ágúst.LÍK/LÍKAR: Engar.
Heimildir
3,9, HKr
Útbreiðsla
Sjaldgæfur. Finnst á nokkrum stöðum á sjávarflæðum á Vesturlandi frá Barðaströnd suður í Herdísarvík. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Evrópa, Asía, Ástralía, Nýja Sjáland, N Ameríka.