Huperzia selago

Ættkvísl
Huperzia
Nafn
selago
Íslenskt nafn
Skollafingur
Ætt
Lycopodiaceae (Jafnaætt)
Samheiti
Lycopodium abietiforme GrayLycopodium densum Lam.Lycopodium recurvum Kit. ex Willd.Mirmau selago (L.) H. P. FuchsSelago vulgaris SchurUrostachys selago (L.) HerterHuperzia selago var. appressum Desv.Huperzia selago var. recurvum Desv.
Lífsform
Fjölær gróplanta
Kjörlendi
Vex í mólendi, snjódældum, grjóturðum og gjótum til fjalla, en finnst stundum í hraungjótum og mosaþembum á láglendi.
Hæð
0.05-0.12 m
Vaxtarlag
Sígræn jurt með uppréttum eða uppsveigðum, stuttum, stinnum, þéttblöðóttum stönglum, sem kvíslast í margar, nokkuð jafnháar, þéttstæðar, fingurlíkar greinar, 5-12 sm á hæð.
Lýsing
Blöðin oftast í átta röðum, stilklaus, heilrend, sverðlaga, oddmjó, smá og hreisturlík, 6-8 mm á lengd og 1-1,5 mm á breidd. Gróbæru blöðin eins og hin blöðin, smá og hreisturlík. Gróhirslurnar í blaðöxlum um miðju árssprotanna, nýrlaga, öll gróin eins. Þar að auki myndast litlir æxliknappar með breiðari og nær oddlausum blöðum hér og hvar í blaðöxlunum. Deilitegundir eru oft taldar tvær hérlendis H. s. subsp. selago og H. s. subsp. arctica (Grossh. ex Tolm) Á. Löve & D.Löve. H. s. ssp. selago er talin fremur sjaldgæf og aðeins á láglendi.H. s. ssp. arctica er allalgeng á útbreiðslusvæði tegundarinnar hérlendis. Í norsku flórunni eru þessar tvær deilitegundir taldar sjálfstæðar tegundir.LÍK/LÍKAR: Lyngjafni. Skollafingurinn má þekkja á því að hann hefur mun styttri renglur en lyngjafninn og dreifðar gróhirslur á æxliknöppunum.
Heimildir
1,2,3,9, HKr
Reynsla
“Eldri nöfn á tegundinni eru t.d. vargslappi, tröllafótur, hrossajafni og villiviðargras. Annars staðar á Norðurlöndum var sterkt seyði af plöntunni notað til þess að eyða lúsum, valda fósturláti, örva hægðir og drepa innyflaorma”. (Ág. H.)
Útbreiðsla
Allalgengur um mestallt landið, en þó ófundinn á Suðurlandi milli Ölfusár og Markarfljóts svo og á hálendi Þingeyjarsýslna.Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Arktísk; Evrópa, Asía, N Ameríka + Falklandseyjar ov.