Hydrocotyle vulgaris

Ættkvísl
Hydrocotyle
Nafn
vulgaris
Íslenskt nafn
Vatnsnafli
Ætt
Apiaceae (Sveipjurtaætt)
Lífsform
Fjölær jurt
Kjörlendi
Vex við laugar, hveri og meðfram heitum lækjum.
Blómalitur
Hvítur
Blómgunartími
Júlí-ágúst
Hæð
0.03-0.10 m
Vaxtarlag
Sérkennileg, hitakær jurt, 3-10 sm á hæð, með skriðulum jarðstönglum. Upp af þeim rísa blöðin á löngum stilkum. Blaðstilkur getur orðið 5-15 sm á lengd og festist neðan í blöðkuna miðja. Blaðstilkurinn er oftast hærður rétt undir festingunni en að öðru leyti er plantan nær hárlaus.
Lýsing
Blöðin eru hárlaus, gulgræn, stilklöng, skjaldlaga eða nær kringlótt, stjarnstrengjótt, grunnbogtennt og 1-3 sm í þvermál. Blómin örsmá, fimmdeild, hvítleit, í 4-6 blóma, kúlulaga sveip á blómleggjum sem eru mun styttri en blaðstilkarnir. Blómknúppar eru oft bleikleitir. Frævan tvíblaða með tveim stílum. Aldin tvíkleyft, hliðflatt klofaldin. Blómgast í júlí-ágúst. LÍK/LÍKAR: Engar. Eina villta tegundin hérlendis með stjörnustrengjótt blöð.
Heimildir
1,2,3,9, HKr
Útbreiðsla
Sjaldgæf, fundin á allnokkrum stöðum við jarðhita í uppveitum Árnessýslu og Borgarfjarðar en ófundin annarsstaðar.Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Ástralía, Kanada, Evrópa, Mexíó, N Ameríka, Swaziland.