Koenigia islandica

Ættkvísl
Koenigia
Nafn
islandica
Íslenskt nafn
Naflagras
Ætt
Polygonaceae (Súruætt)
Lífsform
Einær jurt
Kjörlendi
Vex í deigri moldarjörð, rökum leirflögum og á leirkenndum flæðum og lækjareyrum.
Blómalitur
Gulgrænn
Blómgunartími
Júní-júlí
Hæð
0.01-0.06 m
Vaxtarlag
Einær og safamikil jurt, oftast aðeins 1-6 sm á hæð. Stönglar eru grannir og linir, gulgrænir neðst en purpurarauðir ofan til, ýmist ógreindir eða kvíslgreindir ofan til.
Lýsing
Blöðin nær stilklaus, slíðruð, heilrend, öfugegglaga eða nær kringlótt, græn eða rauð, heilrend, hárlaus. rauðleit. Himnukennt slíður við blaðfótinn. Blómin þrídeild, örsmá, nokkur saman inni í blaðsveipunum, ljósleit eða gulgræn. Blómhlífin einföld, blómhlífarblöðin oftast þrjú en stundum fjögur, snubbótt, 1-2 mm á lengd, hvítleit, græn eða rauð, oft samgróin neðst. Fræflar 3 og ein stíllaus fræva. Fræflar og hunangskirtlar eru fagurgulir. Aldinið egglaga hneta, stutttrýnd, um 2 mm á lengd. Blómgast í júní-júlí. LÍK/LÍKAR: Engar.
Heimildir
1,2,3,9, HKr
Reynsla
“Latneska ættkvíslarheitið er til heiðurs danska lækninum og grasafræðingnum Johann G. König (1728-85) en hann sendi Linné fyrstur manna eintök af þessari tegund héðan frá Íslandi 1767.” (Ág.H.)
Útbreiðsla
Algengt um allt land nema á hálendinu vestan Jökulsár á Fjöllum. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Pólhverf, arktísk og til fjalla í N Ameríku, N Evrópu, N Asíu