Fjölært gras, mjög svipað melgresi, en stráið hært rétt neðan við axið, 30-70 sm á hæð.
Lýsing
Axagnirnar þétthærðar, að minnsta kosti efst. Neðri blómögn týtulaus og hærð. Blómgast í júní-júlí. 2n = 28.
Heimildir
2,9, HKr
Útbreiðsla
Sjaldgæfur slæðingur frá ræktun, sumsstaðar á Suðvestur og Suðurlandi. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: N Ameríka, Grænland og aðeins lítillega í Evrópu og Asíu (Kamtschatka, Japan)