Melampyrum sylvaticum

Ættkvísl
Melampyrum
Nafn
sylvaticum
Íslenskt nafn
Krossjurt
Ætt
Scrophulariaceae (Grímublómaætt)
Samheiti
Melampyrum aestivale Ronniger & SchinzMelampyrum intermedium Ronniger & Schinz
Lífsform
Einær jurt
Kjörlendi
Vex í skóglendi undir birki eða í kjarri.
Blómalitur
Gulur
Blómgunartími
Júlí
Hæð
0.20-0,30 m
Vaxtarlag
Einær hálfsníkill sem dregur næringu úr rótum annarra plantna eins og fleiri tegundir ættarinnar. Stönglar greinóttir, strendir, tvíhliðhærðir og uppréttir, 20-30 sm á hæð.
Lýsing
Blöðin gagnstæð, heilrend, ydd, nær stilklaus og mjólensulaga, blaðrendur niðurorpnar, blöðin 3-6 sm á lengd og 8-10 mm á breidd. Blómin gul, einsamhverf, stök út úr blaðöxlunum og stilklaus, því þéttari sem ofar dregur. Krónan dökkgul með opnu gini, 10-13 sm á lengd með pípunni, neðri vörin þrítennt, efri vörin hjálmlaga með útstæðum kili, uppbrettur framjaðarinn gulhærður. Bikarinn grænn, oft með fjólublárri rák eða blettum, um 10 mm á lengd, með fjórum útstæðum, odddregnum flipum. Fræflar fjórir og ein fræva. Aldin flatvaxið hýðisaldin. Fræin líkjast púpum flugna. Blómgast í júlí.LÍK/LÍKAR: Engar.
Heimildir
1,2,3,9, HKr
Útbreiðsla
Allalgeng innst í Djúpi, við Steingrímsfjörð og Bjarnarfjörð á Ströndum, og í nágrenni Þorskafjarðar, einnig á nokkrum stöðum í Vaglaskógi. Ófundin annars staðar. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Evrópa - austustu hluta Rússlands