Montia fontana

Ættkvísl
Montia
Nafn
fontana
Íslenskt nafn
Lækjagrýta
Ætt
Portulacaceae (Grýtuætt)
Samheiti
Montia lamprosperma Cham.Montia rivularis C.C.Gmel.Montia fontana subsp. variabilis Walters
Lífsform
Einær - fjölær (skammlíf) jurt
Kjörlendi
Vex við lindir og dý eða meðfram lækjum sem seytla frá þeim.
Blómalitur
Hvítur
Blómgunartími
Júní-júlí
Hæð
0.02-0.10 m
Vaxtarlag
Smágerð, safarík, ljósgræn jurt. Stönglar marggreindir, skástæðir eða útafliggjandi, 2-10 sm á hæð, en getur orðið töluvert lengri, liggur þá oftast útaf. Skýtur rótum á stöngulliðamótum og myndar þéttar breiður.
Lýsing
Blöðin gagnstæð, fagurgræn, þykk og safamikil, öfugegglaga, lensulaga eða oddbaugótt, heilrend um 4-8 mm á lengd. Blómin þrídeild, örsmá í blómfáum skúfum úr blaðöxlum. Blómhlífin fremur óregluleg og er lokuð nema í sólskini. Krónublöðin hvít, oftast þrjú (stundum fjögur eða fimm) 1-2 mm á lengd. Bikarblöðin tvö, græn, 1-1,5 mm í þvermál, kringlótt. Fræflar þrír og ein fræva með þremur frænum. Blómleggir bogna niður á við að lokinni blómgun. Aldinið er hýði sem klofnar í þrennt við þroska og myndar þrjú, hrafnsvört og gljáandi fræ. Blómgast í júní-júlí. 2n=20.LÍK/LÍKAR: Engar. Auðþekkt á smáum, þrídeildum blómum.
Heimildir
1,2,3,9, HKr
Útbreiðsla
Algeng um land allt fyrir utan hin þurru svæð miðhálendisins, aðallega við læki og lindir. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Argentína, Ástralía, Evrópa, Kanada, Chiile, Kólumbía, Ekuado, Grænland, Indland, Balí, Maí, Mexíkó, Marokkó, Nýja Gínea, Perú, N Ameríka ov.