Poa annua

Ættkvísl
Poa
Nafn
annua
Íslenskt nafn
Varpasveifgras
Ætt
Poaceae (Grasaætt)
Samheiti
Poa annua f. reptans (Haussknecht) T. Koyama; P. annua var. reptans Haussknecht; P. crassinervis Honda.
Lífsform
Einær grastegund (einkímblöðungur)
Kjörlendi
Vex í hlaðvörpum, við hauga, í vegköntum, á kalblettum í túnum, í opnum flögum og röskuðum svæðum.
Blómgunartími
Júní-ág./sept.
Hæð
0.06 - 0.30 (-0.45) m
Vaxtarlag
Einær ljósgræn grastegund sem myndar fremur þéttar, lágvaxnar breiður. Stráin oftast mörg saman, flest uppsveigð, stundum alveg jarðlæg neðan til, lin, mjúk og lítið eitt flatvaxin, 8-35 sm á hæð.
Lýsing
Blöðin ljósgræn, flöt, lin, mjúk og oft dálítið þver¬hrukkótt. Efstu slíðurhimnurnar langar, 1,5-2 mm. Punturinn ljósgrænn, sjaldnar fjólubláleitur, egg- eða keilulaga, greinilega tvíhliða, gisinn, með sléttum puntgreinum, 2-5 sm á lengd. Smáöxin fjór- til sexblóma, gulgræn, græn eða lítið eitt bláleit, um 5 mm á lengd. Axagnirnar mjóar, 1,5-3 mm á lengd, sú neðri allmiklu styttri en sú efri. Frjóhnappar um 0,7 mm á lengd. Blómgast frá því í júní til hausts. 2n = 28.LÍK/LÍKAR: Vallarsveifgras. Varpasveifgrasið er með mun ljósgrænni blöð og punt og einnig er gott að bera saman lengd axagnanna.
Heimildir
1,2,3,9, HKr, http://www.efloras.org/florataxon.aspx?flora_id=2&taxon_id=200025985
Reynsla
“Vegna þess að plantan óx oft í hlaðvarpa þar sem hlandi var skvett kalla sumir hana hlandgras”. (Ág.H.)
Útbreiðsla
Algengt um land allt.Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Afríka, Asía, Ástralía, Evópa, N & S Ameríka, Kyrrahafseyjar.