Ranunculus auricomus

Ættkvísl
Ranunculus
Nafn
auricomus
Íslenskt nafn
Sifjarsóley
Ætt
Ranunculaceae (Sóleyjaætt)
Samheiti
Ranunculus binatus Kit.
Lífsform
Fjölær jurt
Kjörlendi
Vex í þurrum melum eða graslendi. Sjaldgæf en finnst í litlum mæli í flestum landshlutum.
Blómalitur
Gulur
Blómgunartími
Júní-júlí
Hæð
0.10-0.40 m
Vaxtarlag
Sjaldgæf tegund, sem líkist brennisóley, en þekkist á mjög fjölbreytilegri blaðlögun. Stönglar linir, stofnsveigðir og yfirleitt kvíslgreindir ofan til.
Lýsing
Blöðin oftast hárlaus, gljáandi, gulgræn eða blágræn. Neðri blöðin (grunnblöðin), nýrlaga - þríhyrnd, dúpskipt í 3 hluta sem eru gróftenntir framan til. Efstu stöngulblöðin skipt í fjölmarga þráðmjóa flipa. Hneturnar loðnar með krókbeygðri trjónu. Blómgast í júní-júlí. 2n = 32
Heimildir
9, HKr
Útbreiðsla
Sjaldgæf, aðeins fundin í útsveitum á Austurlandi, miðju Norðurlandi, Vestfjörðum og Snæfellsnesi. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Ástralía, Evrópa, Kanada, Grænland, Indland, Rússland, N Ameríka.