Sagina nodosa

Ættkvísl
Sagina
Nafn
nodosa
Ssp./var
ssp. borealis
Höfundur undirteg.
G.E. Crow.
Íslenskt nafn
Hnúskakrækill
Ætt
Caryophyllaceae (Hjartagrasaætt)
Samheiti
Sagina nodosa var. borealis (Crow) Cronq.
Lífsform
Fjölær jurt
Kjörlendi
Vex í sendnum jarðvegi á melum og vegköntum og í flögum.
Blómalitur
Hvítur
Blómgunartími
Júní-júlí
Hæð
0.03-0.08 m
Vaxtarlag
Dökkgræn-rauðgræn, fremur óásjáleg planta 3-8 sm á hæð. Margir grannir, marggreindir stönglar vaxa út frá miðju, hnúskóttir af smáblaðsprotum sem eru í blaðöxlunum og minna á litla lauka. Þegar plantan deyr falla hnúskarnir af og verða að nýjum einstaklingum.
Lýsing
Blöðin gagnstæð, þráðmjó eða striklaga 2-7 mm á lengd, broddydd. Stöngulblöð styttri en stofnblöðin, styttast eftir því sem ofar dregur og eru örsmá efst á stönglum.Blómin hvít, fimmdeild, á uppréttum blómleggjum, 7-8 mm í þvermál. Blómleggir álíka langir og efstu stöngulliðirnir. Krónublöðin töluvert lengri en bikarblöðin, krónan opin, krónublöð sporbaugótt. Bikarblöðin taugalaus, himnurend, sporbaugótt, græn. Fræflar 10, ein fræva með 5 stílum. Blómgast í júní-júlí. LÍK/LÍKAR: Skeggsandi. Hnúskakrækill auðþekktur frá honum á mjórri blöðum og á hnúskunum.
Heimildir
1,2,3,9, HKr
Útbreiðsla
Algengur á láglendi en fremur sjaldgæfur uppi á hálendinu.Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Kanada, Grænland, Indland, Mexíkó, Nýja Sjáland, N Ameríka, Evrópa.