Sagina saginoides

Ættkvísl
Sagina
Nafn
saginoides
Íslenskt nafn
Langkrækill
Ætt
Caryophyllaceae (Hjartagrasaætt)
Samheiti
Sagina linnaei C. PreslSagina macrocarpa (Reichenb.) J. Mal'ySagina saxatilis Wimmer, Fl. Schlesien: 75. 1840.Spergella saginoides (L.) Reichenb.Spergula micrantha Bunge in Ledeb., Fl. Altaica 2: 183. 1830.Spergula saginoides L.
Lífsform
Fjölær jurt
Kjörlendi
Vex í grónum bollum og gilbrekkum, á eyrum og í flögum, gjarnan í leirbornum jarðvegi.
Blómalitur
Hvítur
Blómgunartími
Júní-júlí
Hæð
0.03-0.08 m
Vaxtarlag
Ljósgræn og hárlaus jurt sem vex í þéttum og flötum þúfum, 3-8 sm á hæð. Stönglar grænir, læpulegir, grannir, gjarnan jarðlægir og rótskeyttir en uppsveigðir til enda.
Lýsing
Blöðingagnstæð og í stofnhvirfingu, strik- eða allaga, 4-10 mm á lengd og innan við 1 mm á breidd, með stuttum, gagnsæjum broddi. Blómin hvít, 4-5 mm í þvermál, oftast fimmdeild (stöku sinnum eru blómin með fjórum krónublöðum), blómleggir ávallt miklu lengri en efstu stöngulliðir og er plantan auðþekkt á því. Blóm drúpa fyrir blómgun en réttast síðan upp. Krónublöðin ívið styttri eða jafnlöng bikarblöðunum og opnast blómin aðeins í sólskini. Bikarblöð snubbótt og himnurend. Fræflar 10. Frævan með fjórum til fimm stílum. Hýðið egglaga, fimmtennt. Blómgast í júní-júlí. LÍK/LÍKAR: Skammkrækill & broddkrækill. Langkrækill auðþekktur frá skammkrækli á fimmdeildum blómum sem breiðast aðeins út í sólskini og þar að auki má benda á að bikarblöðin lykja þétt að aldininu þegar það er þroskað og blómleggir eru oftast töluvert lengri. Broddkrækill (Sagina subulata) líkist langkrækli, en þekkist á því að blöðin enda í mun lengri broddi (-1/2 mm), auk þess sem hann er meira eða minna kirtilhærður.
Heimildir
1,2,3,9, HKr
Útbreiðsla
Algengur, einkum norðanlands og á miðhálendinu. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Evrópa, Kanada, Kína, Japan, Grænland, Mexíkó, Marokkó, Rússland, Viet Nam, N Ameríka.