Saxifraga hypnoides

Ættkvísl
Saxifraga
Nafn
hypnoides
Íslenskt nafn
Mosasteinbrjótur
Ætt
Saxifragaceae (Steinbrjótsætt)
Samheiti
Saxifraga decipiens subsp. hypnoides L.
Lífsform
Fjölær jurt
Kjörlendi
Vex í grýttu landi s.s. skriðum, giljum, áreyrum og urðum, einkum þar sem rakt er.
Blómalitur
Hvítur - dekkrí æðar
Blómgunartími
Júní-júlí
Hæð
0.10-0.15 m
Vaxtarlag
Langir, skriðulir, blaðsprotar og upp úr þeim vaxa síðan gisblöðóttir blómstönglar, 10-15 sm á hæð. Stönglar grannir og kirtilhærðir.
Lýsing
Blöð við grunn um 1 sm á lengd, niðurmjó en frambreið með þremur til fimm, sjaldnar 7 broddyddum tönnum. Stöngul- og blaðsprotablöð stakstæð, oftast heilrend og nær striklaga. Blómin hvít með dekkri æðum, standa eitt eða fleiri á hverjum stöngli, 1,5-2 sm í þvermál. Krónublöðin, öfugegglaga, um þrisvar sinnum lengri en bikarblöðin. Fræflarnir 10. Frævan klofin í toppinn með tveim stílum. Aldin hýði. Blómgast í júní-júlí.LÍK/LÍKAR: Þúfusteinbrjótur. Mosasteinbrjótur auðþekktur á löngum, gis¬blöðóttum blaðsprotum auk þess sem hann er allur stærri og með stærri blóm.
Heimildir
1,2,3,9, HKr
Útbreiðsla
Algengur eða víða um land allt, ekki síst til fjalla.Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Skandinavía, Frakkland, Þýskaland, Írland, Spánn, Stóra Bretland.