Silene uniflora

Ættkvísl
Silene
Nafn
uniflora
Íslenskt nafn
Holurt
Ætt
Caryophyllaceae (Hjartagrasaætt)
Samheiti
Cucubalus alpinus Lam.Oberna alpina (Lam.) Ikonn.Oberna uniflora (Roth) Ikonn.Silene maritima With.Silene inflata subsp. maritima (With.) CajanderSilene maritima subsp. alpina (Lam.) NymanSilene vulgaris subsp. maritima (With.) Á. Löve & D. Löve
Lífsform
Fjölær jurt
Kjörlendi
Vex á melum og söndum. Algeng um allt land þar sem malarborinn jarðvegur eða vikur er fyrir hendi, ekki síst á öræfunum.
Blómalitur
Hvítur (gulhvítur)
Blómgunartími
Júní-júlí
Hæð
0.10-0.30 m
Vaxtarlag
Fjölær planta með mörgum greinóttum, uppsveigðum eða jarðlægum stönglum, sem vaxa upp af sömu rót, 10-30 sm á hæð. Öll er plantan hárlaus.
Lýsing
Laufblöðin gagnstæð, kjötkennd, lensulaga eða mjóoddbaugótt, heilrend, lensulaga, 1-2 sm á lengd. Blómin fimmdeild, stór, fá saman eða stök á stöngulendum. Krónan hvít, um 2 sm í þvermál. Krónublöðin 1,5-2,5 sm á lengd, klofin í oddinn og þá talað um að krónublöð séu sýld. Bikarinn um 1,5 sm á lengd, oftast fimmtenntur, uppblásinn og samblaða, klukkulaga, bleikfjólublár með dekkra æðaneti. Í hverju blómi eru 10 fræflar og ein fræva. Fræflar með dökkum frjóhirslum og fræva með fjórum til sex stílum. Hýðið hnöttótt, fremur dökkt, egg- eða hjartalaga. Blómgast í júní-júlí. LÍK/LÍKAR: Engar, auðþekkt á útblásnum bikar.
Heimildir
1,2,3,9, HKr
Reynsla
“Rótina má mala og nota sem mjöl. Með blómunum var kláði læknaður. M. a. vegna þess að tegundin er algeng, vex þar sem ettir henni er tekið og hefur sérkennilegan uppblásinn bikar, eru til á henni mörg nöfn. Af þeim má nefna: Blöðrujurt, fálkapungur, flugnapungur, galtarpungur, melapungur, prestapungur og pungagras. Nafnið hjartagras er dregið af lögun aldina en laxerarfi af örvandi niðurgangsverkun plöntunnar. Börn kalla hana oft flugnabú eða flugublóm, af því að flugur álpast niður í belgvíðan bikarinn. Útbreiddur misskilningur er að plantan sé flugnaæta.” (Ág.H.)
Útbreiðsla
Algeng um mestallt landið. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Evrópa, Nýja Sjáland, Rússland, N Ameríka.