Sparganium natans

Ættkvísl
Sparganium
Nafn
natans
Íslenskt nafn
Tjarnabrúsi
Ætt
Sparganiaceae (Brúsakollsætt)
Samheiti
Sparganium minimum Wallr.
Lífsform
Fjölær vatnaplanta
Kjörlendi
Vex í tjörnum eða síkjum. Hér og þar í öllum landshlutum.
Blómgunartími
Júní-júlí
Hæð
0.20-0.50 m
Vaxtarlag
Fjölær jurt með skriðulum jarðstönglum og tvíhliðstæðum blöðum, sem oft eru fljótandi, 20-50 sm á lengd.
Lýsing
Blöðin flöt, þunn og fremur fíngerð með ógreinilegum eða engum miðstreng, mjókka í oddinn, lítið eitt þrístrend neðan til. Stöngulblöðin flöt með víðum slíðrum. Blómin smá, einkynja, með ljósleitri hreisturkenndri blómhlíf. Ein fræva í kvenblómum og 3 fræflar í karlblómum. Blómkollar ætíð í háblaðaöxlum. Kvenkollar grænir, 2-3, legglausir eða þeir neðri leggstuttir. Yfirleitt aðeins einn karlkollur, stundum 2. Karlkollar ofar en kvenkollar neðar. Steinaldinið grænleitt, egglaga eða oddbaugótt, oft langrákótt og með stuttri trjónu.Lík/Líkar: Náskyldur og mjög líkur mógrafabrúsa. Helst má aðgreina þessar tegundir á aldininu sem hefur stutta trjónu á tjarnabrúsa en er trjónulaust á mógrafabrúsa. Eins má geta að blómkollar eru greinilega aðgreindir á tjarnabrúsa en síður á mógrafabrúsa.
Heimildir
1,2,3,9, HKr
Útbreiðsla
Víða um land allt. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Evrópa, Japan, Mexíkó, N Ameríka.