Stellaria media

Ættkvísl
Stellaria
Nafn
media
Íslenskt nafn
Haugarfi
Ætt
Caryophyllaceae (Hjartagrasaætt)
Samheiti
Basionym: Alsine media L.Synonym(s): Alsine media L.; Stellaria media subsp. eliezeri (Eig) Zohary;
Lífsform
Einær jurt
Kjörlendi
Vex við hús og bæi, í fuglabjörgum og víðar þar sem nógur áburður er. Berst viða með búfjáráburði, t.d. í garða. Algeng um land allt.
Blómalitur
Hvítur
Blómgunartími
Maí-sept.
Hæð
0.05-0.20 m
Vaxtarlag
Einær, ljósgræn, safamikil jurt, 5-20 sm á hæð. Stönglar blöðóttir, marggreindir, ýmist jarðlægir eða uppsveigðir og með tveim hárabeltum eftir endilöngu.
Lýsing
Blöðin eru gagnstæð, hárlaus, breiðegglaga, lin og safarík, 5-30 mm á lengd. Blaðstilkar oftast randhærðir.Blómin hvít, fimmdeild á löngum blómleggjum. Krónublöðin oftast styttri en bikarblöðin, klofin nær niðurúr, svo að þau sýnast vera tíu. Bikarblöðin græn, með glærum himnufaldi, egglensulaga, 4-6 mm á lengd. Fræflar 10 og ein fræva með þrískiptu fræni. Blómgast í maí-sept. LÍK/LÍKAR: Stjörnuarfi. Haugarfinn þekkist best á stuttum krónublöðum og breiðum laufblöðin miðað við lengd.
Heimildir
1,2,3,9, HKr
Reynsla
“Sagt er að haugarfi vaxi alls staðar þar sem hvíti maðurinn hefur stigið fæti. Plantan þótti kælandi, mýkjandi og græðandi. Seyði af ferskum arfa var talið mýkja hægðir. Það eyðir og iðrabólgum, græðir sár í lungum og örvar matarlyst. Ekki skal drekka meira en tvo bolla á dag og hæfilegt þykir að nota um 5 g af ferskri jurtinni í einn bolla af vatni. Líka má eta arfann hráan. Giktveikum mönnum fannst gott að leggjast í arfabeðju, enda talinn stilla hita og verk í bólgum og eyða þeim. Nýr fiskur geymist vel í haugarfa. Lita má dökkblátt eða fjólublátt með haugarfa, brúnspæni og álúni. Einnig nefndur taðarfi.” (Ág.H.)
Útbreiðsla
Algengur um land allt nema óvíða á Miðhálendinu. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Mjög útbreiddur, vex meira og minna um allan heim en þó ekki í eyðimörkunum.