Viola epipsila

Ættkvísl
Viola
Nafn
epipsila
Íslenskt nafn
Birkifjóla (Kjarrfjóla)
Ætt
Violaceae (Fjóluætt)
Samheiti
Viola suecica Fries
Lífsform
Fjölær jurt
Kjörlendi
Vex í deiglendi á grösugum völlum, grasmóum og kjarrlendi.
Blómalitur
Ljósfjólublár
Blómgunartími
Maí-júní
Hæð
0.04-0.15 m
Vaxtarlag
Stönglar jarðlægir og uppfrá þeim vaxa blóm og blöð, 4-10 (-15) sm á hæð.
Lýsing
Laufin stilklöng, oftast gishærð á neðra borði eða báðum megin. Blaðkan grunnbogtennt, breiðhjartalaga.Blómin lútandi, ljósfjólublá, oft með áberandi dökkum æðum, sporinn samlitur krónunni. Krónan einsamhverf. Bikarblöðin snubbótt, græn, með ljósum himnufaldi. Ein fræva og fimm rauðbrúnir fræflar. Aldinið þrístrent hýði sem klofnar í þrjá geira við þroskun. Örsmá forblöð ofarlega á blómstönglinum. Blómgast í maí-júní. LÍK/LÍKAR: Birkifjóla er mjög lík mýrfjólu. Auðgreindar hvor frá annarri á því að tvö forblöð á blómstilk eru fyrir ofan miðju stönguls birkifjólunnar og blöð hennar eru hjartalaga og gishærð á neðra borði.
Heimildir
1,2,3,9, HKr
Útbreiðsla
Fremur sjaldgæf en er þó allvíða á landræna svæðinu á austanverðu Norðurland og á Héraði. Ófundin utan þess. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Kanada, Skandinavía, Þýskaland, Mexíkó, Pólland, Rúmenía, N Ameríka.