Viola palustris

Ættkvísl
Viola
Nafn
palustris
Íslenskt nafn
Mýrfjóla
Ætt
Violaceae (Fjóluætt)
Lífsform
Fjölær jurt
Kjörlendi
Vex í snöggu deiglendi, votlendi, valllendi og rökum giljabollum. Algeng um allt land.
Blómalitur
Ljósfjólublár með dekkri æðum
Blómgunartími
Maí-júní
Hæð
0.03-0.10 m
Vaxtarlag
Jurtin er 3-10 sm á hæð. Blóm- og blaðleggir vaxa upp af láréttum, greindum jarðstönglum.
Lýsing
Blöðin eru íhvolf, grunnbogtennt eða sagtennt, nýrlaga og hárlaus á löngum, vængjalausum eða mjóvængjuðum stilk. Blómin ljósfjólublá, oft með áberandi dökkum æðum, einsamhverf, drúpandi, á löngum, uppréttum leggjum og heldur minni en á týsfjólu. Sporinn samlitur krónunni. Bikarblöðin snubbótt, nær sporbaugótt með ljósum himnufaldi. Ein fræva og fimm, rauðbrúnir fræflar. Aldinið er þrístrent hýði sem klofnar í þrennt við þroskun. Á blómstilkum eru tvö örsmá forblöð um eða rétt fyrir neðan miðju. Blómgast í maí-júní. 2n=48.LÍK/LÍKAR: Birkifjóla & Týsfjóla. Mýrfjólan auðgreind frá henni á staðsetningu forblaðanna um miðbik blómleggsins því að blaðkan er alveg nýrlaga og hárlaus. Týsfjóla auðþekkt á stærri blómum og ólíkri blaðlögun.
Heimildir
1,2,3,9, HKr
Útbreiðsla
Algeng í votlendi um land allt. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Evrópa, Kanada, Grænland, Mexíkó, Marakkó, N Ameríka.