Zostera marina

Ættkvísl
Zostera
Nafn
marina
Íslenskt nafn
Marhálmur
Ætt
Zosteraceae (Marhálmsætt)
Samheiti
Zostera angustifolia (Hornem.) Rchb.Zostera hornemanniana TutinZostera marina subsp. angustifolia (Hornem.) LemkeZostera marina subsp. marinaZostera marina var. angustifolia Hornem.Zostera marina var. marina
Lífsform
Fjölær sjávarjurt
Kjörlendi
Vex í leirefju á grunnsævi, í lygnum vogum, víkum eða fjörðum, á kafi í sjó eða að hluta til upp úr á fjöru.
Blómalitur
óásjáleg blóm
Blómgunartími
Ágúst-okt.
Hæð
0.30-1 m
Vaxtarlag
Fjölærar sjávarjurt, sem vex í lygnum sjó nærri ströndinn, 30-100 sm á hæð.
Lýsing
Blöðin, dökkgræn, snubbótt, löng og mjúk, stakstæð, dökkgræn, bandlaga, beinstrengjótt, með bylgjuðum blaðjaðri. Blöðin geta orðið allt að hálfur til einn metri á lengd en eru aðeins 1,5 til 3 mm á breidd. Blaðslíðrin lokuð.Blómin í tveim aðskildum röðum í klasa sem lokaður er inni í blaðslíðrum. Blómin blómhlífarlaus. Einn fræfill og ein fræva í hverju blómi. Aldinið ljósbrúnt aflangt, langgárótt, með stuttri trjónu. Blómgast í ágúst-október. 2n=12.LÍK/LÍKAR: Brúsakollar hafa lík blöð, en vaxa aldrei í sjó og blómskipanin er allt önnur.
Heimildir
1,2,3,9, HKr
Útbreiðsla
Víða í fjörum á Vesturlandi frá Reykjanesi norður á Strandir, annars staðar sjaldgæfur. Fundinn einnig við Melrakkasléttu, Vopnafjörð og í Lóni. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Ástralía, Evrópa, Grænland, Japan, Mexkó, N Ameríka o.v.