Abies amabilis

Ættkvísl
Abies
Nafn
amabilis
Íslenskt nafn
Silfurþinur
Ætt
Þallarætt (Pinaceae)
Lífsform
Sígrænt tré.
Kjörlendi
Sól - hálfskuggi/skjól.
Blómalitur
Gulbrúnn (kk)
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
12-15m (-80m)
Vaxtarlag
Keilulaga, regluleg, bein, þétt, grönn króna, árssprotar grannir og þétthærðir, gráir eða gulbrúnir.
Lýsing
Á ungum trjám er börkur sléttur og grár með hvítum bólum (kvoðudoppum), dökknar með aldrinum. Endabrum dökkrauð, 3 mm, kúlulaga eða droplaga, hjúpuð þykkri harpixkvoðu. Barrnálar bandlaga, flatar, uppréttar (framstæðar) neðan á greinum en ofan á greinum vita nálar fram á við og mynda um 45°horn við greinina, 2-3 sm að lengd og um 2mm á breidd, oftast breiðastar ofan við miðju, þverstífðar eða sýldar í endann, glansandi, appelsínuilmandi við nudd, dökkgrænar á efra borði og grópaðar, en með tvær breiðar hvítar varaopsrákir á neðra borði. Könglar aflangir 8-14cm langir og um 5cm í þvermál, uppréttir á 2ára greinum, purpuralitir áður en þeir ná fullum þroska, smádúnhærðir, köngulhreistur 2.5-2.8cm á breidd, stoðblöð hulin.
Uppruni
V N-Ameríka (SA Alaska - NV Kalifornía)
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning, kuldameðhöndlun í 3-4 mánuði, fræ missir fljótt spírunarhæfni sína.
Notkun/nytjar
Stakstæð, þyrpingar, beð (eða sem jólatré).
Reynsla
Til hjá SR í Fossvogi um mannhæðarháar, lítt reynd að öðru leyti hérlendis. Þarf langt og milt haust = langan vaxtartíma. Talinn í viðkvæmari kantinum. Þolir illa kalkríkan og þurran jarðveg en kann þeim mun betur við sig í meðalrökum, léttsúrum, frjóum jarðvegi
Yrki og undirteg.
'Spreading Star' lágvaxið, nær aðeins um 1m hæð með láréttar og útbreiddar greinar. 'Compacta' mjög þéttvaxið. Þau hafa ekki verið reynd hérlendis svo vitað sé.