Abies nordmanniana

Ættkvísl
Abies
Nafn
nordmanniana
Íslenskt nafn
Normannsþinur
Ætt
Þallarætt (Pinaceae)
Lífsform
Sígrænt tré.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi, skjól.
Hæð
5-15 m
Vaxtarlag
Beinvaxið tré, keilulaga króna. Tré 25-30 (-50) m há í heimkynnum sínum, með greinar alveg niður að jörð, (gamlar) greinar kransstæðar, reglulegar, skaga langt fram neðst eða eru slútandi. Börkur gamalla trjáa svart-grár, hreistrarður.
Lýsing
Ársprotar grængulir, glansandi, hærðir eða hárlausir. Brum egglaga kvoðulaus. Barrnálar þétt burstalaga, skiptast ekki eða eru aðeins skiptar á grönnum greinum, 20-30 mm langar og 2-2,5 mm breiðar, grunnur þeirra breikkar greinilega, skjaldarlaga og er undinn. Oddur barrnálanna er bogadreginn og framjaðraður, með gróp á efra borði. Nálarnar glansa mikið, eru aðeins með 2 loftaugarendur á neðra borði. Könglar 15 (-20) sm langir, 5 sm breiðir, ungir könglar eru grænleitir, fullþroska könglar eru dökkbrúnir. Köngulhreistur er breið-keilulaga, heilrend, hreisturblöðkur standa út úr könglinum og sveigjast aftur.
Uppruni
Kákasus.
Harka
4
Heimildir
1,7,9
Fjölgun
Sáning (forkæla fræ í um mánuð), vetrargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í beð, þyrpingar, jólatré.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til planta sem sáð var 1992, kelur ekkert og er mjög falleg.
Yrki og undirteg.
Nokkur yrki í ræktun erlendis sem lítt eða ekki hafa verið reynd hérlendis, t.d. 'Glauca', 'Erecta', 'Nana', 'Tortifolia' og fleiri.Abies nordmanniana ssp. equitrojanii er líkur aðaltegund en með varaopsrákum á bæði efra og neðra borði. Barr 45 x 2mm. Heimk.: Tyrkland (z4, ekki reynd hérlendis).