Abies veitchii

Ættkvísl
Abies
Nafn
veitchii
Íslenskt nafn
Hringþinur
Ætt
Þallarætt (Pinaceae)
Samheiti
A. sikokiana Nakai, A. veitchii v. reflexa Koidez.
Lífsform
Sígrænt tré
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi, skjól
Hæð
6-10 m
Vaxtarlag
Tré, 15-25 m hátt í heimkynnum sínum. Greinar stuttar, láréttar og útbreiddar, og með hringlaga fellingu við grunninn á greinunum (dæmigert!). Krónan mjó-keilulega, greinótt alveg niður að jörð. Börkur er grár og sléttur, hvítgrár efst á trénu.
Lýsing
Ársprotar yfirleitt rauðbrúnir, ± þétt og stutthærðir. Brumin eru smá, nokkurn veginn kúlulaga, rauðleit með gagnsæja/glitrandi kvoðu. Barrnálar þéttar, ofan á greininni vita þær fram á við og oftast upp á við, en skiptast neðan á þeim. Þær eru bandlaga, 10-25 mm langar, þverstýfðar í oddinn og sýldar; að ofan eru þær gljáandi djúpgrænar og með gróp, að neðan með 2 krítarhvítar loftaugarendur. Könglar eru sívalir, 6-7 sm langir, 3 sm breiðir. Ungir könglar eru blápurpuralitir, stundum grænleitir. Köngulhreistur eru mjög þéttstæð aðeins 15 mm breið, blá-purpuralitir eða grænir á unga aldri, síðar brúnir. hreisturblöðkur ná dálítið út úr könglum og sveigjast aftur. Fræ 7 mm löng gul. Vængur svartleitur.
Uppruni
Til fjalla í M & S Japan
Harka
3
Heimildir
1
Fjölgun
Sáning, forkæla fræið í um 1 mánuð, vetrargræðlingar, síðsumargræðlinga (IBA).
Notkun/nytjar
Í beð, jólatré, þyrpingar.
Reynsla
Ekki til sem stendur Lystigarðinum, en það hefur verið sáð til þessarar tegundar.
Yrki og undirteg.
Abies veitchii var. sikokiana (Nak.) Kusaka er með styttri nálum (1.5-2.5 sm) og minna hærðum. Heimkynni Shikoku fjöll í Japan - z3 - hefur ekki verið reyndur hérlendis.