Acer barbinerve

Ættkvísl
Acer
Nafn
barbinerve
Íslenskt nafn
Drekahlynur
Ætt
Hlynsætt (Aceraceae).
Lífsform
Lauffellandi runni eða tré.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Gulur.
Blómgunartími
Vor.
Hæð
- 6 m
Vaxtarlag
Runni eða lítið tré allt að 6 m hátt. Börkur grágulur og sléttur. Ungar greinar grænar, sjaldan rauðleitar, dúnhærðar.
Lýsing
Lauf 5-flipótt, þunn, kringluleit-egglaga, grunnur hjartalaga eða næstum því þannig, jaðrar með grófar tennur sem vita fram á við, djúpgræn á efra borði en ljósari og dúnhærð á æðastrengjum á neðra borði. Blómskipanir í stuttum klösum. Karlblóm eru í klösum sem vaxa úr hliðarbrumum, kvenblómin vaxa úr ýmiskonar brumum, með eitt par af laufum eða á kröftugum sprotum sem sumpart vaxa úr lauflausum brumum. Blómin eru gul, skífa um grunn frjóþráðanna. Aldin 4-6 sm.
Uppruni
SA Síbería, NA Kína, Kórea.
Harka
6
Heimildir
1, 2
Fjölgun
Sáning strax og fræin hafa náð fullum þroska eða eftir að þau hafa verið forkæld. Fræ í tvívængjuðum, hárlausum hnotum.
Notkun/nytjar
Stakstæð, í þyrpingar, í beð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 1982 og gróðursett í beð 1991. Hefur oftast kalið talsvert árlega, en skrimtir samt.