Acer ginnala

Ættkvísl
Acer
Nafn
ginnala
Íslenskt nafn
Síberíuhlynur
Ætt
Hlynsætt (Aceraceae).
Samheiti
Réttara: Acer tataricum ssp. ginnala
Lífsform
Runni - lítið tré
Kjörlendi
Sól eða dálítill skuggi
Blómalitur
Gulhvítur
Blómgunartími
Vor
Hæð
3-6 m
Vaxtarlag
Lauffellandi runni eða lítið, oft margstofna tré, allt að 6 m hátt og 8 m breitt. Krónan hvelfd og breið, greinar grannar, hárlausar.
Lýsing
Lauf gagnstæð, 3-flipótt, 4-8 sm löng og 3-6 sm breið, stöku lauf ekki með flipa, miðflipinn greinilega lengri en hliðafliparnir, hvass- eða gróf-tvísagtennt, dökkgræn og glansandi ofan, en ljósgræn neðan, hárlaus, skærrauð að haustinu, oft hvít-marmaramynstruð. Blómin gulhvít, ilmandi, í legglöngum klösum. Vængir samsíða eða mætast í hvössu horni, um 2,5 sm langir. Laufgast snemma.
Uppruni
M & N Kína, Japan.
Harka
4
Heimildir
1, 7, http://www.ces.ncsu.edu
Fjölgun
Sáning strax og fræin hafa náð fullum þroska eða eftir að þau hafa verið forkæld.
Notkun/nytjar
Sem stakstætt tré, í þyrpingar, í beð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 2002 lofar góðu. Meðalharðgerður-harðgerður, best í meginlandsloftslagi. Þrífst ágætlega í LA, vex vel en kelur nokkuð árlega.