Acer negundo

Ættkvísl
Acer
Nafn
negundo
Íslenskt nafn
Askhlynur
Ætt
Hlynsætt (Aceraceae)
Lífsform
Lauffellandi tré/stór runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Grængulur.
Blómgunartími
Snemmsumars.
Hæð
4-6 m
Vaxtarlag
Tré allt að 25 m hátt í heimkynnum sínum, oft með fleiri en einn stofn, krónan breið, útstæðar greinar og hárlausar. Sérbýli. Börkur grár, sléttur. Greinar hárlausar, grænar eða gráar, stundum bláleitar.
Lýsing
Lauf allt að 22 sm, fjaðurskipt, smálauf 3-7, stundum 9 talsins, en oftast 5, neðsta parið og endasmáblað eru stundum með 3 flipa. Smálauf egglaga, gróftennt við oddinn, skærgræn á efra borði, ljósari á því neðra, ögn dúnhærð eða hárlaus. Blómskipunin hliðstæð, karlblómin í hnoðum í klasa með 15-50 blóm, kvenblómin eru lítil, í drúpandi klasa, með 1-11 blóm og stundum með 1 blaðpar. Blómin grængul, kvenblómin með löng, hvít fræni og ekki með vanþroska fræfla. Aldin allt að 4 sm, hnotir litlar, sporvala-hnöttóttar til nokkuð flatar, með æðar. Vængir mætast í hvössu horni.
Uppruni
Mið- & N-Ameríka.
Harka
2
Heimildir
1, 2
Fjölgun
Sáning strax og fræin hafa náð fullum þroska eða eftir að þau hafa verið forkæld í 3 mánuði. Fræ í tvívængjuðum hárlausum hnotum.
Notkun/nytjar
Stakstæð tré, í þyrpingar, í beð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 1988 og gróðursett í beð 2001. Kelur dálítið. ----
Yrki og undirteg.
Til eru yrki af askhlyn með flikrótt lauf, t. d. Acer negundo 'Variegatum' og Acer negndo 'Flamingo'.Einnig má geta A. negundo L. var. texanum Pax., A. negundo var. violaceum Kirchn., Acer negundo ssp. mexicanum (DC) Wesm. en samkvæmt RHS eiga allar þessar undirtegundir að vera harðgerðar.