Acer pensylvanicum

Ættkvísl
Acer
Nafn
pensylvanicum
Íslenskt nafn
Randhlynur
Ætt
Hlynsætt (Aceraceae)
Lífsform
Runni - lítið tré
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Gulleitur.
Blómgunartími
Síðla vors.
Hæð
- 6 (-12) m
Vaxtarlag
Tré eða aðeins runnkennt tré, 6-12 m hátt, sem stakstætt tré myndar það breiða krónu. Greinar sléttar, grænar með hvítar rákir, aldrei döggvaðar.
Lýsing
Lauf öfugegglaga, með 3 flipa, mjög stutta, hvassydda og með tvöfalda tennur. Laufin 12-18 sm löng, með ryðgul, mjúk hár á neðra borði, að síðustu aðeins í vikum æðastrengjanna, hreingul að haustinu. Laufleggir með brúngula hæringu. Blómin gulleit í hárlausum, hangandi klösum, koma seinna en laufin. Aldin með íbjúga, bogna, upprétta vængi. Gulir haustlitir.
Uppruni
NA Ameríka, A Kanada
Harka
3
Heimildir
1,7, http://apps.rhs.org.uk
Fjölgun
Ágræðsla. Sáning strax og fræin hafa náð fullum þroska eða eftir að þau hafa verið forkæld.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, í beð. Ræktaður í rökum en vel framræstum jarðvegi.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 2002 og lofar bara góðu.