Acer pseudosieboldianum

Ættkvísl
Acer
Nafn
pseudosieboldianum
Íslenskt nafn
Kóreuhlynur
Ætt
Hlynsætt (Aceraceae)
Lífsform
Lauffellandi runni eða lítið tré.
Kjörlendi
Sól (eða lítill skuggi).
Blómalitur
Grænleitur.
Blómgunartími
Vor.
Hæð
- 6-9 m
Vaxtarlag
Vex væntanlega hérlendis sem lágvaxinn, útbreiddur runni.
Lýsing
Lauf nær kringlótt með 9-11 flipum, tvísagtennt, hjartalaga grunnur, glansandi græn á efra borði en dúnhærð á því neðra.
Uppruni
Mansjúria - Kórea.
Harka
5
Heimildir
1, http://davesgarden.com
Fjölgun
Ágræðsla. Sáning strax og fræin hafa náð fullum þroska eða eftir að þau hafa verið forkæld. Fræ eru í tvívængjuðum, hárlausum hnotum. Látið blómskipanir með þorna á plöntunni og safnið fræinu síðan.
Notkun/nytjar
Stakstæður runni, í þyrpingar, í beð. Ýmiskonar jarðvegur, meðalrakur, ofvökvið ekki.
Reynsla
Var sáð í Lystigarðinum 2007, ekki til þar lengur 2012. Lítt reynd enn sem komið var í uppeldi. Er með flotta rauða haustliti.