Acer sieboldianum

Ættkvísl
Acer
Nafn
sieboldianum
Íslenskt nafn
Skógarhlynur*
Ætt
Hlynsætt (Aceraceae)
Lífsform
Runni - lítið tré
Kjörlendi
Sól og skjól
Blómalitur
Fölgulgrænn
Blómgunartími
Vor
Hæð
6 m (- 10 m í heimk.)
Vaxtarlag
Tré eða runni allt að 10 m há í heimkynnum sínum, en allt að 6 m í ræktun.
Lýsing
Börkur ljósgrár. Ungar greinar grábrúnar eða með munstur sem minna á köngulóarvef og stundum með þétt, úfið hár meðan þær eru ungar. Lauf með 7-11 egglaga-aflanga flipa, oftast með 9 flipa, kringluleit. Dökkgræn ofan, oft með purpuralita jaðra, æðastrengir dúnhærðir á neðraborði, jaðrar tvísagtenntir, tennur vísa fram. Blómskipunin upprétt, oft þétthærð, með 15-20 fölgulgræn blóm. Aldin allt að 2 sm, hnotir hnöttóttar, með áberandi æðum. Vængir mætast í gleiðu horni.
Uppruni
Japan.
Harka
6
Heimildir
1, 2
Fjölgun
Sá fræjum um leið og þau eru þroskuð eða verið forkæld.
Notkun/nytjar
Í raðir, í beð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 1982 og gróðursett í beð 1991, kól dálítið framan af, en lítið í seinni tíð.