Acer stachyophyllum

Ættkvísl
Acer
Nafn
stachyophyllum
Ssp./var
ssp. betulifolium
Höfundur undirteg.
(Maxim.) De Jong.
Íslenskt nafn
Birkihlynur
Ætt
Hlynsætt (Aceraceae)
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Gulur.
Blómgunartími
Vor.
Hæð
3 - 5 m
Vaxtarlag
Margstofna, uppréttur runni, allt að 5 m hár, myndar rótarskot.
Lýsing
Laufin heilrend eða ögn 3-flipótt, breiðfleyglaga, oftast með 3 taugar við grunninn. Jaðrar með fremur grófar tennur, sem vita fram á við.
Uppruni
M & V Kína.
Harka
6
Heimildir
1,2, http://www.plantdatabase.co.uk
Fjölgun
Sáning strax og fræin hafa náð fullum þroska eða eftir að þau hafa verið forkæld.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar. Þessi undirtegund er með norðlægustu útbreiðsluna og er aðgreind á minni laufum og mjög miklum rótarskotum.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur sem sáð var til 2006 og lofa þær báðar góðu.