Achillea macrophylla

Ættkvísl
Achillea
Nafn
macrophylla
Íslenskt nafn
Skuggahumall
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
30-100 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, blómstönglar uppréttir, dúnhærðir, 30-100 sm, ógreindir. Grunnlauf legglaus, breið þríhyrnd-egglaga að útlínum til, allt að 7 sm, djúp ein-fjaðurskipt eða fjaðurskert, með 4-7 breiða, tennta laufhluta. Stöngullauf lík neðantil á stönglinum, mjólensulaga ofantil, með tennur sem vita fram á við.
Lýsing
Hálfsveipurinn gisblóma með 3-40 stórar körfur, blómskipnarleggir grannir. Reifar allt að 8 mm í þvermál. geislablóm 5-7, hvít, geislar 3-6 mm. Pípukrýnd blóm hvít.
Uppruni
Alpafjöll.
Harka
3
Heimildir
= 2
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í skrautblómabeð, í þyrpingar.
Reynsla
Harðgerð planta sem þrífst mjög vel bæði í Lystigarðinum og Grasagarði Reykjavíkur.