Achillea millefolium

Ættkvísl
Achillea
Nafn
millefolium
Íslenskt nafn
Vallhumall
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Lífsform
Fjölær jurt
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur, bleikur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
30-40 sm eða hærri.
Vaxtarlag
Fjölær jurt sem myndar breiður. Stönglar 10-100 sm háir, oftast ógreindir, uppréttir eða uppsveigðir. Laufin dúnhærð, bandlaga eða lensulaga, 2-3 fjaðurskipt, framhald blaðstilksins o,5-1 mm breiður, heilrendur, laufin á miðhluta stöngulsins allt að 9 x 1,5 sm, legglaus, grunnlauf allt að 20 x 4 sm, með legg.
Lýsing
Körfur 50 eða fleiri í hálfsveip sem er 4-15 sm í þvermál, blómskipunarleggur 1-5 mm, reifar allt að 5,5 x 4 sm, nærreifar aflangar til lensulaga, jaðar mjór, brúnn, himnukenndur, geislablóm 4-6, allt að 2,5 mm, hvít eða bleik.
Uppruni
Ísland, Evrópa - V Asía.
Harka
2
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning. Íslenski vallhumallinn er sjaldan eða aldrei fluttur í garða. Ræktuð yrki eru fjölmörg og yfirleitt góðar garðplöntur.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í beð.
Reynsla
Harðgerð og auðræktuð jurt, notaður áður fyrr á ýmsan hátt t.d. í te og smyrsl svo eitthvað sé nefnt.
Yrki og undirteg.
Yrki til dæmis 'Cerise Queen' allt að 150 sm, kröftugt, laufin lóhærð, blómin skærbleik. 'Fire King' blómin skærbleik.