Achillea nana

Ættkvísl
Achillea
Nafn
nana
Íslenskt nafn
Dverghumall
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Lífsform
Fjölær jurt
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
15 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, lóhærð, ilmar mikið. Stönglar allt að 15 sm, ógreindir, uppréttir. Lauf allt að 4,5 sm, aflöng-lensulaga til spaðalaga, 1-2 fjaðurskipt með marga heilrenda lipa.
Lýsing
Körfur í hálfsveip, 4-8 talsins, blómskipunarleggir 10 mm, reifar 5-7 mm í þvermál, nærreifar 4 mm, jaðrar breiðir, brúnir, geislablóm 2-3,5 mm, hvít.
Uppruni
Alpafjöll, Apenninafjöll.
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í beð, í kanta.
Reynsla
Harðgerð planta bæði norðanlands og sunnan, lagleg steinhæðarplanta, ekki í Lystigarðinum 2015.