Aconitum fischeri

Ættkvísl
Aconitum
Nafn
fischeri
Íslenskt nafn
Gljáhjálmur
Ætt
Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Léttur skuggi, hálfskuggi - sól.
Blómalitur
Dökk purpurablár.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
60-90 sm
Vaxtarlag
Stönglarnir eru uppréttir, 100 sm háir, hærðir, með um 20 lauf. Laufleggurinn er 6,5-10 sm langur, hærður. Blaðkan er 8 x 12 sm til 12 x 15 sm. djúpskert. Blágrænt lauf, þykkt og leðurkennt, glansandi á efra borði, breið skipt í 3-flipa.
Lýsing
Blómskipunin er endastæð með 4-6 blóm. bikarblöðin eru purpurablá. Neðri bikarblöðin eru 1 sm löng, hliðarbikarblöð eru 2 sm löng, efsta bikarblaðið er 2,5 sm langt með stutta trjónu. Krónublöðin eru hárlaus. nöglin er 0.8 sm löng. Blómin dökk purpurablá. Vörin er 0,45 sm löng og gaffalgreind í oddinn, sporinn er hringvafinn og 0,2 sm langur. Fræflarnir eru hárlausir. Kvenlíffæri eru úr 3 hærðum frævum. Fræhulstur eru 1,5 sm löng og hárlaus. Fræin eru 0,25 sm löng.
Uppruni
A Asía ( N-Japan, A Rússland).
Heimildir
= www.pfaf.org/user/Plant.aspx?LatinName=Aconitum+fischeri, davesgarden.com/guides/pf/go/1550/#b, plantlust.com/plants/aconitum -fischeri, - Christoph Wiart 2012: Medicinal Plants of China. Korea and Japan
Fjölgun
Sáning, fræinu er sáð sem fyrst í sólreit. Skipting, helst að vorinu en líka er hægt að gera það að haustinu.
Notkun/nytjar
Í kanta, í fjölæringabeð. Þarf ekki uppbindingu. Öll plantan er eitruð. Notuð sem lækningaplanta í Kína.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 1983 og gróðursett í beð 1987, þrífst vel.