Aconitum loczyanum

Ættkvísl
Aconitum
Nafn
loczyanum
Íslenskt nafn
Lundahjálmur*
Ætt
Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Hálfskuggi.
Blómalitur
Purpura til næstum hvít.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
- 70 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, dúnhærð, stönglar oft kantaðir neðantil, allt að 70 sm háir, lítið greindir, grunnlauf og neðstu laufin með langan legg, nýrlaga-kringlótt eða kringluleit-hjartalaga, 6-15 sm breið, djúp eða grunn 5(7)-klofin, skert og tennt.
Lýsing
Blómin purpura til nærri hvít. Blómklasar endastæðir eða í blaðöxlunum, 5-15 sm langi, blómleggurinn um 1 sm, langhærður. Blómin 2-2,5 sm löng, efri bikarblöð langhærð á ytra borði. Frævur 5, með útstæð hár, verða hárlausar.
Uppruni
Japan.
Heimildir
= OHWI: Flora of Japan
Fjölgun
Sáning, skipting.
Notkun/nytjar
Í fjölæringabeð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sá var til 1998 og gróðursett í beð 2006, þrífst vel.