Aconitum lycoctonum

Ættkvísl
Aconitum
Nafn
lycoctonum
Ssp./var
ssp. neopolitanum
Höfundur undirteg.
(Ten.) Nyman.
Íslenskt nafn
Gulhjálmur
Ætt
Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
Samheiti
Aconitum lamarckii Rchb.
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Gulmengaður.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
80-120 sm
Vaxtarlag
Rætur langar, Stönglar háir, uppréttir. Laufin meira eða minna kringlótt til breiðari en löng, djúp 5-7 flipótt, ljósgræn, hárlaus eða hærð ofan, æðastrengir oftast hærðir neðan, laufin eru með langan legg, með flipa sem eru klofnir meira en að miðju.
Lýsing
Blómskipun skúfur, endaklasar stórir og margblóma, blómin fjölmörg með gula slikju, blómleggir dúnhærðir. Hjálmurinn sívalur eða pokalaga, 3 x eða meir lengri en hann er breiður, oftast hærður á ytra borði, sporinn gormlaga. Fræhýði oftast 3, fræ sljó 4-hyrnd, brún eða fílabeinslit.
Uppruni
S Evrópa (fjöll), Marokkó.
Harka
3
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting að vori og hausti, haustsáning.
Notkun/nytjar
í skrautblómabeð, í þyrpingar, í blómaengi.
Reynsla
Harðgerður og fallegur, sjaldséður nema í grasagörðum og hjá einstöku safnara. Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur undir þessu nafni, til annarar var sá1983, en hinnar 1990, þeirri eldri var plantað í beð 1986 og hinni 1991, báðar þrífast vel.