Aconitum napellus

Ættkvísl
Aconitum
Nafn
napellus
Ssp./var
ssp. vulgare
Höfundur undirteg.
(Rchb.) Rouy et Foucaud.
Íslenskt nafn
Fjallahjálmur
Ætt
Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól eða hálfskuggi.
Blómalitur
Fjólublár eða blár.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
- 90 sm
Vaxtarlag
Stönglar 90 sm. Laufin þétt saman neðan við blómskipunina, klofin alveg niður, flipar oftast mjóir oftast skiptir meira en hálfa leið að miðrifi, flipar mjó-bandlaga, langyddir, 1-8 mm breiðir.
Lýsing
Blómskipunin ógreind eða greinótt, endastæði hlutinn stærri en axlastæðu hlutarnir, fremur þéttblóma, með hrokkin hár. Blómin fjólublá eða blá. Hjálmur 7-14 x 11-18 mm, hvolflaga, mjúkhærður. Sporar beinir. Fræhýði oftast 3, fræ með vængi á hornunum, hliðar sléttar eða ögn hrukkóttar.
Uppruni
V Alpar, Pýreneafjöll.
Harka
6
Heimildir
1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í skrautblómabeð, í raðir, í þyrpingar.
Reynsla
Harðgerð planta. Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 2001 og gróðursett í beð 2013.